Tvinnbílar

| Um orku í samgöngum

Tvinnbílar (Hybrid Electric Vehicles)

Tvinnbílar eru bílar sem nota bæði með rafhreyfil og bensín- eða dísilvél sem aflgjafa.  Sprengihreyfill bílsins er í raun rafstöð og er því rafmagnið framleitt í bílnum sjálfum.  Þar að auki er orkunni, sem fellur til þegar hemlað er, safnað saman og breytt í rafmagn.  Þessir bílar eru því mun sparneytnari vegna þess að hreyfillinn gengur með mun jafnara álagi, rafhreyfillinn tekur á sig álagstoppana, eins og t.d. þegar hraði er aukinn.  Tvinnbílar eru til á hinum almenna markaði, en þeir eru nokkuð dýrir í innkaupum en á móti kemur sparnaður í eldnseytis kaupum.  Í flestum evópubandalagslöndum eru skattar á slíka bíla minnkaðir og einnig eru oft veittir styrkir til að kaupa slíka bíla.  Nokkuð auðvelt er að framleiða fjórhjóladrifna tvinnbíla, því þá er einn eldsneytis- og einn rafmagnsdrifinn öxull. 

Vegna þess hve slíkir bílar eru sparneytnir er auðvelt er að sjá hvers vegna tvinnbílar hafa vakið mikla athygli í umhverfis- og bílaheiminum síðustu 8 ár.  Toyota Prius er gott dæmi um tvinnbíl og er í raun ótrúlegt að þessi fimm sæta fjölskyldubíll sé með minni útblástur en litlir dísilbílar eins og t.d. Toyota Yaris, Citroen C2 og VW Lupo.  Langflest módel tvinnbíla eru vel fyrir neðan útblástursmörk Euro IV.



 

 


Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15