Lífetanól

 

| Um orku í samgöngum

Lífetanól (Bio-ethanol

Flexifuel etanól bílar, eru bílar sem geta bæði notað jarðefnaolíu og etanól. Þeir hafa einn eldsneytistank og keyra á blöndu af jarðefnaolíu og etanóli sem er allt að 85% etanól (E85).  Í Brasilíu eru til dæmis nær allir bílar fjölorkubílar; inni í vélinni er nemi sem aðlagar vélina að eldsneytisblöndunni.  Etanól er framleitt úr jurtum  sem látnar eru gerjast í alkólhól t.d. maís og sykurreyr. Brasilia er einn stærsti framleiðandinn og þaðan er flutt etanól til Evrópu til dæmis. Áætla má að etanól sé best fengið úr jurtum sem vaxa í hlýju loftslagi og séu hraðvaxta og innihaldi helst mikinn sykur.  

Aðal kostir þess að nota lífetanól er plönturnar taka koltvísýring úr loftinu við að mynda sykur og því eru þær að endurvinna hanna. Heildarlosunin verður sú sama og bindingin og ekkert bætist við, ef ekkier notuð olía við ræktunina.  Fyrir 100% lífetanól er minnkun útblásturs þessara lofttegunda um 50-60% skv. vistferilgreiningu („life-cycle analysis“), samanborið við jarðefnaeldsneyti.  Þegar lífetanól sem unnið er úr beðmi sem er í trjám gæti þessi tala breyts enn frekar, eða  í um 75-80%.  Þessi munur er aðallega vegna þess hve lítil orka fer í afð fella trén og að betri nýtni er í efnaferlunum, sem er lykillinn að minnkun heildarútblásturs.




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15