Vetnis-Prius

Prius tvinnbílar

Í Reykjavík eru nú 10 vetnis-tvinnbílar af gerðinni Prius frá Toyota. Þeir eru með vél eins og aðrir Príus-bílar en brenna vetni í stað bensíns og hafa þeir rafhlöður og tölvubúnað til að nýta eldsneytið til hins ítrasta. Brunahólfsvélar eru eins og þær sem eru í venjulegum bílum.En efnarafalar eru það sem gefur betri fyrirheit því að nýtnin er betri við það að breyta vetninu í rafmagn frekar en að missa hluta orkunnar sem hita við bruna eldsneytisins.

Príusarnir eru smíðaðir í Japan en síðan breytt á vegum fyrirtæksins Quantum í Kaliforníu. Hver bill kostar 130.000 US$ og var breytingarkostnaðurinn 95000 US$. Bílarnir voru pantaðir með 6 mánaða fyrirvara og eftir breytingar voru þeir loks fluttir sjóleiðina til Íslands. Þeir eru með 2 ára ábyrgð frá framleiðanda og breytanda. Vetnistankurinn getur mest tekið 2,4 kg undir 350 bara þrýstingi í 3 hylkjum og getur ekið 165 km við bestu skilyrði. Notkun bílanna hefur farið fram innan flota Orkuveitu Reykjavíkur, hjá Landsvirkjun, Vistorku og hjá bílaleigu Herz. Starfsfólk notar þá í ýmsum erindum. 

 

Bíllinn sem hefur verið í notkun hjá Vistorku hefur verið ekið um 9 þúsund kílómetra og gengur vel vor sumar og haust. Hins vegar kom í ljós að vetrarkuldi hefur áhrif á brunann í vélinni. Þegar kólna fór um haustið 2008 fór vélin að ganga misjafnlega og kraftur bílsins minnkaði. Í ljós kom að vatnið sem myndast við brunann gufaði ekki nógu hratt upp heldur vildi safnast fyrir og jafnvel að blandast vélarolíunni. Það er eins og vélin hitni ekki nægilega til að drífa vatnið sem myndast við bruna í vélina út í útblásturskerfið á formi gufu og þar með út um útblástursrörið. Einnig þarf að skipta oft um olíu á vélinni.

Komið var fyrir vélahitara af því tagi sem notaður er til að hita dísilbíla og auðvelda að vélin ræsist á köldum morgnum og til að draga úr eldnseytisnotkun. Þá var eins og við manninn mælt að vandræðin hurfu. Hér er yfirlit um breytingarnar sem áttu sér stað. Í mars var settur vélahitari í bílinn.

 

 

Meðalhiti í janúar var -0,2°C  og bíllinn notaði 1,762 kg/100km

Meðalhiti í febrúar var -0,2°C   1,762 kg/100km

Meðalhiti í mars var +0,8°C  Með vélahitara breyttist eldsneytisnotkun í 1,484 kg/100km

Myndin er tekin við afhendingu vetnisbílanna til Vistorku árið 2007.

 

 

 

Lykiltölur framleiðanda
     
   
    
     
     

 

   
          
 

   
 Stærð 5   farþegar
 Stærð vélarI4 1.5L    túrbó
 Framdrif Sjálfskipting   4  gíra
 Loftpúðar  framan  og til hliðar
     
Akstur í borg þar sem batterí nýtist betur FTP75  80 km  kg H2

 

HWYFET langkeyrsla

 67 km  kg H2

 

Drægni:

 

165km   á tanki




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15