
Um miðjan júlí 2010 var auglýst eftir þátttakendum í tilraunaverkefnið 'Rafbílar fyrir almenning'. Yfir hundrað og þrjátíu umsóknir bárust, auk þess sem fjöldi fólks og fyrirtækja hringdi vegna mikils áhuga á málefninu. Farið var í gegnum umsóknir, þær metnar og að lokum voru átta fjölskyldur valdar úr hópnum. Verkefnið hefur það að markmiði að bjóða nokkra rafbíla með eða án vetnis til leigu með því skilyrði að gögnum um notkun bílana sé skilað aftur.
í mars 2011 hafa fjórar fjölskyldur af átta lokið þátttöku og eru síðustu fjölskyldurnar komnar af stað.
Ford Focus – vetnisrafbíll
Vetnisrafbílarnir sem verkefnið hefur til yfirráða er bíll af fyrstu kynslóð vetnisrafbíla, árgerð 2005. Bíllinn er rafbíll, sem notar svokallaðan efnarafal til að umbreyta vetni í rafmagn sem er síðan nýtt til að knýja bílinn áfram. Þar sem bílarnir eru af fyrstu kynslóð Ford efnarafalabíla eru barn síns tíma og nokkuð hráir í útliti. Þessa bíla þarf að geyma í skúr í frosti eða tengja við vélarhitara til að forðast skemmdir á búnaði.
Mitsubishi iMiEV – rafgeymabíll
Annar rafgeymabílanna sem nýttur er í verkefninu er Mitsubishi iMiEV rafgeymabíll. Bíllinn er raðsmíðaður, undanfari fjöldaframleiðslu, árgerð 2010. Rafgeymabíllinn er búinn nýjustu tækni, hefur lithium-ion rafhlöður og er skráður með 120 km sem hámarksvegalengd á fullri hleðslu.
Th!nk – rafgeymabíll
Hinn rafgeymabílinn sem nýttur er í verkefninu er að gerðinni Th!nk. Hugvitið er norskt en bíllinn er smíðaður í Finnlandi. Bíllinn er framhjóladrifinn og knúinn með Natríum-nikkel-chloride rafgeymum (ZEBRA Z36). Þessir rafgeymar eru svokallaðir háhita-rafgeymar sem halda hitastigi kringum 260-350°C. Bíllinn er skráður með 160 km hámarksdrægi á sumrin en 90 km drægi á veturna.
Auk umhverfislegs ávinnings fylgjumst við hjá Íslenskri NýOrku nánar með notkunarmynstri slíkra bíla, orkunýtni í hefðbundinni notkun og hvernig þeir standast íslenska veðráttu. Mikilvægustu upplýsingarnar eru þó um væntingar fólks til slíkra bíla og hvort þeir uppfylli þarfir þátttakenda. Um er að ræða tilraunaverkefni sem mun styðja undirbúning á markaðssetningu slíkra bíla. Fylgst verður með fjölskyldunum frá upphafi og tekin við þær viðtöl a.m.k. tvisvar sinnum á leigutímanum.
Eitt af því sem kannað verður er aðgengi fólks að áfyllingu. Varðandi vetni þarf að taka tillit til þess að aðeins ein eldsneytisstöð er í landinu, Skeljungsstöðin á Vesturlandsvegi. Varðandi rafgeymabílinn þurfa þátttakendur að huga að aðgengi að innstungum til að endurhlaða rafgeymana. Slíkar upplýsingar ásamt orkunotkun og viðhorfi fólks til hleðslutíma þarf að skoða ásamt því að afla þekkingar á hvernig dreifikerfið á Íslandi getur tekið við slíkum bílum.
Verkefnið er styrkt af Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar og Orkusjóði einnig af ferðaskrifstofunni Ísafold, Höldri - bílaleigu Akureyrar, Heklu bílaumboði Mitsubishi og NORA rannsóknasjóði.
Sem fyrr er íslensk NýOrka trú stefnu sinni um að kanna hve vel nýtæknibílar henta við íslenskar aðstæður og notkun rafmangdreifikerfis til að vinna til orkubera og hlaða farartækja.
Frá 2003 hefur Íslensk NýOrka staðið að prófun fjölda rafbíla sem ýmist nota aðeins rafgeyma eða mynda rafmagn um borð úr vetni. Uppsöfnuð þekking og reynsla hefur skilað sér í góðri kynningu og tengslum við alþjóðleg rannsókna- og tilraunaverkefni, sem ýmist eru styrkt af norrænum eða evrópskum áætlunum enda hafa 92% af umsóknum fyrirtækisins í erlenda samkeppnissjóði verið samþykktar. Þekking á raftækni í samgöngum er orðin einstök enda unnin í samvinnu við háskóla og fyrirtæki hér á landi og framleiðendur erlendis. Byggt er á skráningu gagna úr fjölda bíla með ýmsar tækniútfærslur, viðmótskönnunum, viðtölum við ökumenn, áætlangerðum, úttektum, mælingum og viðhaldi í tímans rás.
Íslensk NýOrka tekur þátt í verkefni sem fór af stað í mars 2011 (INTELECT) innan ramma norrænna orkurannsókna (NER „Electric Transport“) sem var styrkt um 20 milljónir króna. Markmið þess er að skrá hvernig hið opinbera á öllum Norðurlöndum styður við visthæfar samgöngur, einkum þær sem ganga fyrir rafmagni. Meðal annars verður hlutverk Orkuseturs á Akureyri að setja upp samnorræna reiknivél á netinu um opinberar ívilnanir sem stuðla að aukinni notkun á visthæfum bílum.
Enn eitt verkefni sem Íslensk NýOrka er þátttakandi í og fellur undir sömu áætlun kallast „Rekkevidde“ (Raundrægni). Það fékk úthlutað 38 milljónum króna. Lykilþátttakendur í því eru Nýsköpunarmiðstöð Finnlands (VTT) og „TestsiteSweden“ en þau sérhæfa sig hermilíkönum fyrir stóru bílaframleiðendurna og geta líkt eftir mismunandi akstursaðstæðum og veðurfari þannig að áhrif þeirra á íhluti með mismunandi driftækni komi fram og drægnin metin. Nú verða líkönin notuð við norrænar akstursaðstæður til að skoða rafbíla nánar og raunverulegt drægi þeirra. Niðurstöðurnar skipta miklu máli fyrir þá sem hyggjast nota bíla með nýja hreina dritftækni. Fyrstu notkunartilraunir á Íslandi sýna að veðurfar og akstursaðstæður sem og notkun aukabúnaðar hafa talsverð áhrif á það hversu langt er hægt að komast á hverri hleðslu. Fyrstu kynslóðir rafhleðslubíla hafa stutt drægi miðað við bensínbíla og getur það haft áhrif á ákvarðanatöku kaupenda í framtíðinni.
Um miðjan júlí 2010 var auglýst eftir þátttakendum í tilraunaverkefnið 'Rafbílar fyrir almenning'. Yfir hundrað og þrjátíu umsóknir bárust, auk þess sem fjöldi fólks og fyrirtækja hringdi vegna mikils áhuga á málefninu. Farið var í gegnum umsóknir, þær metnar og að lokum voru átta fjölskyldur valdar úr hópnum. Verkefnið hefur það að markmiði að bjóða átta íslenskum fjölskyldum að leigja visthæfa bíla og safna gögnum um reynslu og viðtökum þeirra á tímabilinu.
Nú þegar fjórar fjölskyldur, af átta, lokið þátttöku og eru síðustu fjölskyldurnar komnar af stað.
Auk umhverfislegs ávinnings fylgjumst við hjá Íslenskri NýOrku náið með fjölskyldunum til að öðlast upplýsingar um notkunarmynstur slíkra bíla og orkunotkun í hefðbundinni notkun. Mikilvægustu upplýsingarnar eru þó að kanna væntingar fólks til slíkra bíla og hvort þeir uppfylli þarfir þátttakenda. Um er að ræða tilraunaverkefni sem mun aðstoða aðila við undirbúning á markaðssetningu slíkra bíla í framtíðinni. Fylgst verður með fjölskyldunum frá upphafi og tekin verða viðtöl við fjölskyldurnar a.m.k. tvisvar sinnum á verktímanum.
Eitt af því sem kannað verður er aðgengi fólks að orku. Varðandi vetni þarf að taka tillit til þess að aðeins ein eldsneytisstöð er í landinu, Skeljungsstöðin á Vesturlandsvegi. Varðandi rafgeymabílinn þurfa þátttakendur að huga að aðgengi að innstungum til að endurhlaða rafgeymana. Slíkar upplýsingar ásamt orkunotkun og viðhorfi fólks til hleðslutíma þarf að skoða ásamt því að afla þekkingar á hvernig dreifikerfið á Íslandi getur tekið við slíkum bílum.
Verkefnið hefur til umráða 3 vetnisrafbíla af gerðinni Ford Focus og 2 rafgeymabíla af gerðinni Mitsubishi iMIEV og Th!nk.
Verkefnið er styrkt af Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar og Orkusjóði. En verkefnið er einnig styrkt af ferðaskrifstofunni Ísafold, Höldur - bílaleigu Akureyrar ásamt Heklu og NORA rannsóknasjóði.
Mitsubishi iMiEV – rafgeymabíll
Annar rafgeymabílanna sem nýttur er í verkefninu er Mitsubishi iMiEV rafgeymabíll. Bíllinn er raðsmíðaður, undanfari fjöldaframleiðslu, árgerð 2010. Rafgeymabíllinn er búinn nýjustu tækni, hefur lithium-ion rafhlöður og er skráður með 120 km sem hámarksvegalengd á fullri hleðslu.
Th!nk – rafgeymabíll
Hinn rafgeymabílinn sem nýttur er í verkefninu er rafgeymabíll að gerðinni Th!nk. Hugvitið er norskt en bíllinn er smíðaður í Finnlandi. Bíllinn er framhjóladrifinn og knúinn áfram með Natríum-nikkel-chloride rafgeymum (ZEBRA Z36). Þessir rafgeymar eru svokallaðir háhita-rafgeymar sem halda hitastigi kringum 260-350°C. Bíllinn er skráður með 160 km hámarksdrægi á sumrin en 90 km drægi á veturnar.
Ford Focus – vetnisrafbíll
Vetnisrafbílarnir sem verkefnið hefur til yfirráða er bíll af fyrstu kynslóð vetnisrafbíla, árgerð 2005. Bíllinn er rafbíll, sem notar svokallaðan efnarafal til að umbreyta vetni í rafmagn sem er síðan nýtt til að knýja bílinn áfram.