
HYAPPROVAL
HYApproval er verkefni þar sem unnið er að samræmingu á reglum og öryggiseftirliti með vetnisstöðvum sem gætu fengið starfsleyfi á evrópska efnahalgssvæðinu. Því lauk um áramót 2007 - 2008.
Íslensk NýOrka er einn af 26 þátttakendum í HyApproval-verkefninu, sem styrkt er af Evrópusambandinu. Markmið þess er að útbúa handbók sem nota má við byggingu vetnisstöðva til að hafa samræmi á milli þeirra hvað varðar öryggisráðstafanir, áfyllingaraðferðir, o.s.frv. Verkefnið verður unnið í samvinnu við evrópsk yfirvöld með það fyrir augum að samræma reglugerðir í mismunandi löndum. Handbókin verður sett á netið en mikilvægt er aðhenni verði haldið við í takt við þær tækninýjungar sem eru nú í tilraunanotkun.
Hér má fyrst berja augum inngang að handbókinni á íslensku, en handbókin verður á vefnum.. Det Norkse veritas hefur umsjón með uppfærslu bókarinnar þar til formlega verður gengið frá því hvaða yfirvald í Evrópusambandinu getur tekið að sér að fylgja verkefninu eftir.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu verkefnisins, www.hyapproval.org.