Verkefni

Íslensk NýOrka tekur þátt í ýmsum samstarfsverkefnum sem verkefnisstjórar, verktakar og ráðgjafar.

Rannsóknir og þróun eru alls kyns stúdíur sem enda með skýrslum.

Tækninotkun og prófanir lýsir viðfangsefnum þar sem tæknibúnaður er settur í notkun og fylgst með því hvernig hann reynist

Það er mikið leitað til fyrirtækisins frá öðrum löndum Evrópu, einkum Norðurlöndum, en jafnframt Bandaríkjunum og Japan, S. Ameríku og eyríkjum um allan heim um þátttöku og samskipti í vetnisverkefnum. Íslensk NýOrka er hvorki með tilraunastofu í eðlis- né efnafræði, enda fara grunnrannsóknir til dæmis um geymslu vetnis fram í Háskóla Íslands. NýOrka tekur þátt í prófunum tækja, tilraunaakstri og nýtingu nýjustu tækni við íslenskar aðstæður og öðrum þeim búnaði sem gæti hentað til að nýta almennt hér. Vetnisstöðin er rekin af Skejlungi og Framtaki en NýOrka nýtir gögn frá henni til að skoða nýtni og þróun notkunarinnar. Vetnisvögnunum var lagt 2007 því þá lauk tilraunaakstrinum. Núna eru nýjustu gerðir til sölu enda var tæknibúnaður þeirra uppfærður vegna þeirrar reynslu sem fékkst við tilraunaaksturinn. 




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15