
Fyrirtækið var stofnað með það að markmiði að gera tilraunir með vetni sem eldsneyti í þeim tilgangi að undirbúa og hefja vetnisvæðingu íslensks samfélags.
Ríkisstjórni Íslands samþykkti 1998 að stefna að því að nýta betur innlenda endurnýjanlega orku. Ef hluti orkunnar er nýttur til að framleiða innlent eldsneyti má slá margar flugur í sama höggi: Draga úr koltvísýringsútblæstri, minnka innflutning jarðaefnaeldsneytis og um leið byggja upp þekkingu sem nýst getur til atvinnusköpunar. Bragi Árnason og Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessorar við Háskóla Íslands ruddu hugmyndinni braut.