
Íslensk NýOrka, frumkvöðull í notkun vetnis sem orkubera, gekkst fyrir því árið 2005 að iðnskólakennarar og iðnaðarmenn fengju tækifæri til að kynna sér vetnistækni, geymslu vetnis, virkni efnarafala og öryggismál í þýskri kennslumiðstöð (EAZ í Aalen). Leonardo áætlun EB styrkti hugmyndina rausnarlega svo hægt var að bjóða 16 þátttakendum styrk upp í förina og komu kennarar úr mörgum iðnskólum inn í hópinn.
Ferðastyrkur var að upphæð € 1225, námsferðin tók 12 daga, en gerður var samningur við virta verklega kennslumiðstöð sem bauð viðurkennt námskeið í enskri útgáfu. Staðurinn bauð góðan aðbúnað fyrir nemendur og var þátttökukostnaður áætlaður alls um 2230 Evrur. Atvinnurekendur og sjóðir styrktu þátttakendur að hluta ( sumir allt að 980 Evrum eða um 80.000 krónum) á þeim tíma. Íslenskur sérfræðingur í vetni og efnarafölum, Gunnar Þór Jónsson, viðhaldsstjóri vetnisvagnanna var fararstjóri.
Þessi stutta lýsing er birt hér til hvetja aðra til að taka að sér svipaðar ferðir en NýOrka hefur ekki í hyggju að standa að annarri að svo stöddu.
Dagana 1.ágúst – 12.ágúst, 2005 verður efnt til fyrsta vetnisnámskeiðsins í Aalen (rétt við Ulm í S. Þýskalandi). Námskeiðin verða haldin á sérhannaðri vinnustofu um efnarafala og unnt er að læra um vinnslu þeirra, viðhald og viðgeðir sem og orkukerfi sem byggja á vetnistækni. Jafnframt er sólarorkuver á staðnum. Námskeiðin skiptast í fyrirlestra, vinnuæfingar, vettvangsferðir og úrlausn verkefna. Skilyrði og skilmálar fyrir þátttakendur
• Skilyrði fyrir þátttöku er góð ensku- og/eða þýskukunnátta og almenn þekking á raftækni.
• Menntun í rafiðnum, bílgreinum eða sambærilegri iðn, kennarar í þessum fögum hafa forgang.
• Skilyrði er að hver þátttakandi sjái sjálfur um að bóka og greiða flugfar og lestir. Vert er að hafa í huga að þeim mun líklegra er að ná í ódýrt flug sem fyrr er bókað.
• Hver einstaklingur sér sjálfur um eigin ferða- og slysatryggingu, enda gilda almennar reglur um ferðir og sjúkratryggingar á Evrópska efnahagssvæðinu.
• Skilyrði er að hver þátttakandi hafi skráð og virkt tölvufang, enda fara upplýsingar milli aðila í tölvupósti.
• Þátttakendur samþykkja að Íslensk Nýorka greiði alls jafngildi 1200Evra (á gengi þess dags sem yfirfærslan kemur frá Leonardosjóðnum) upp í heildarkostnað, ferðir og uppihald, enda stedur þeim til boða ódýr gisting og hálft fæði, sem og sameiginlegar vettvangsferðir gegn vægu verði. Áætlað heildarverð kemru fram í meðfylgjandi töflu.
• Styrkurinn verður greiddur út í tvennu lagi; annars vegar 50.000 kr eftir kaup flugfarseðils (kvittun fyrir greiðslu þarf að skila inn) Hins vegar verður seinni hlutinn (um 45000kr) greiddur þegar allir einstaklingar hafa skilað skýrslu og Leonardoáætlunin hefur yfirfært lokagreiðslur til Íslenskrar NýOrku.
Haldinn verður fundur /fundir með væntanlegum þátttakendum í lok júní, en sækja skal um fyrir 20. júní. Áætlun um kostnað fylgir hér en hverjum og einum er í sjálfsvald sett hvernig kvöldverði verði háttað (um 25 €). Gisting, morgunverður og hádegisverður stendur til boða á staðnum (alls 75 €). Gistiaðstaðan er snyrtileg en íburðarlaus.

Þátttakendur eru hvattir til að afla fjár eða að leita samninga við sjóði eða fyrirtæki um styrki til viðbótar við það framlag sem Íslensk NýOrka og Leonardo áætlunin leggur til (um 80.000) en ætlast er til að ferðagögnum, flugmiða og lestarferðum verði skilað inn að loknu námskeiði. Tekið skal fram að sérstaka kvittun fyrir námskeiðsgjöldunum er hægt að nálgast á vinnustofnunni í Þýskalandi.
Prentvænt form: vetnisafalanamskeid.pdf