Fyrirlestrar

young_students_universityh2_courseÍslensk NýOrka hefur boðið gestum fyrirlestra um vetni, nýtæknibíla, samgöngustefnu fyrirtækja og helstu rannsóknarverkefni fyrirtækisins. Fyrirlestrunum fylgja umræðustundir þar sem fyrirspurnum er svarað og reynt er að svala forvitni gesta. Hópar sérfræðinga jafnt og framhaldsskólanema, kennara og eldri borgara hafa hlýtt á kynningar okkar. Jafnframt hefur verið tekið á móti skólahópum til að sýna vetnistæknina og ræða við starfsfólk á viðhaldsverkstæðum. Strætisvögnunum var lagt árið 2007 en í umfer eru vetnisbílar og frá árinu 2010 hefur fyrirtækið einnig leigt út rafgeymnabíla. Þeir eru því allir í umferð og ekki til sýnis hjá okkur. Að jafnaði eru fleiri erlendir gestir en Íslendingar sem leita eftir kynningu á verkefnum NýOrku. Við tökum á móti erlendum hópum af orkusérfræðingum jafnt og stúdentum eða framhaldsskólahópum. Erlendir hópar greiða fyrir þjónustuna. Fyrirlestrar eru dagsettir með góðum fyrirvara  og eru haldnir að jafnaði í Orkugarði þar sem fulltrúar NýOrku sýna með fjöskrúðugum myndum efni frá umliðnum árum og tengjast tilraunum með vetnisfarartæki og rafdreifikerfið. Fallað r vetnisvagnaverkefnið, rannsóknarniðurstöður, almennar viðtökur og reynslu af því að nota vetni sem orkubera.  Hópum frá skólum er jafnframt boðið að skoða vetnisstöðina ef áhugi er fyrir hendi. Notið hnappinn: hafa samband til að panta tíma.

Nánari upplýsingar um fyrirlestra og námskeið er að finna á ensku útgáfu síðunnar.




Íslensk NýOrka - Orkugarði, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík - Sími: +354 588 03 10 - Fax: +354 588 03 15